Verið hjartanlega velkomin í Ólafíustofu
Í Ólafíustofu er að finna skrifstofu Íslensku kirkjunnar og skrifstofu sóknarprests. Í Ólafíustofu er einnig lítil kapella og fundaraðstaða með aðgangi að litlu eldhúsi. Komið hefur verið upp litlu bókasafni, Lóunni, með íslenskum bókum fyrir börn og fullorðna. Hér er hægt að fá lánaðar bækur eða koma með bækur og skipta þeim út fyrir aðrar. Í bókahorninu er hugguleg aðstaða til að setjast niður og lesa eða spjalla saman.
Ólafíustofa er yfirleitt opin miðvikudaga og fimmtudaga kl. 10.00-14.00
Hér er oft heitt á könnunni og notaleg stemming en endilega hringið á undan ef þið viljið kíkja svo þið komið ekki að læstum dyrum. Verið öll hjartanlega velkomin.
Sími: 22 36 01 40. Afgreiðslutími síma er alla daga kl. 09.00-15.00.
Skrifstofustjóri: Berglind Gunnarsdóttir
Sóknarprestur: sr. Lilja Kristín Þorsteinsdóttir
Vefsíða: www.kirkjan.no
Netfang: kirkjan@kirkjan.no
Pilestredet Park 20
1. hæð, 0176 Oslo ( beint á móti Coop Extra)
