Gæðastundir eru að jafnaði einu sinni til tvisvar í mánuði yfir vetrarmánuðina, á fimmtudögum kl. 12 í Ólafíustofu.
Hér er hægt að koma saman og eiga notalega stund í uppbyggilegu samfélagi. Hittingarnir eru afslappaðir og mjög fjölbreyttir. Hér er t.d. boðið upp á fræðslu, upplestur úr bókum og ljóðum, hugleiðslu, fjöldasöng með undirleik og jafnvel íslenska kvikmyndasýningu. Þá verða einnig í boði gönguferðir með og án fróðleiks, innanbæjar og utan. Síðast en ekki síst er þetta gott tækifæri til að spjalla saman á okkar íslenska ylhýra og njóta samveru í góðum hópi.
Við reynum að sníða hittingana eftir því sem fólk hefur áhuga á og eru allar hugmyndir vel þegnar.
Hópurinn hefur einnig farið í leikhús saman í boði safnaðarins og vorferðin er fastur liður sem notið hefur vinsælda.
Við hefjum yfirleitt stundina með stuttri hugleiðingu og eftir það borðum við saman léttan hádegisverð. Vegna matarins er fólk beðið um að tilkynna þátttöku með því að svara SMS-skeyti sem er sent út eða hafa samband við Ólafíustofu í síma 22 36 01 40 (alla daga klukkan 10-14).
Verið hjartanlega velkomin.
Þið getið látið skrá ykkur í SMS-hóp og/eða tölvupósthóp Gæðastunda með því að hringja í Ólafíustofu eða senda tölvupóstpóst á berglind@kirkjan.no með nafni og símanúmeri og þá fáið þið sendar upplýsingar fyrir hvern viðburð sem fram undan er.