fbpx

Jólahátíð í Skjold kirkju í Bergen

Event details

  • 29. nóvember 2025
  • 12:00
Íslenska kirkjan í Noregi í samstarfi við Sönghópinn Björgvin býður alla velkomna á Jólahátíð laugardaginn 29.nóvember sem verður haldin í Skjold kirkju í Bergen.
Dagurinn verður hlýr og hátíðlegur með mikilli tónlist, jólalestrum og söngvum, og jólaballi.
Jólahátíðin hefst kl. 12 með aðgengilegri og ljúfri jólaguðsþjónustu fyrir alla fjölskylduna, og að henni lokinni er jólaball í safnaðarheimilinu.
Það verður heitt kaffi á könnunni og allir taka með eitthvað gott á sameiginlegt kaffihlaðborð.
Gengið verður í kringum jólatré og hver veit nema jólaleynigestur mæti á svæðið með góðgæti í poka.
Barnabóka skiptimarkaður verður á staðnum. Við hvetjum ykkur til þess að koma með barnabækur sem þið eruð hætt að lesa og fá aðrar í staðinn sem þið eigið eftir að lesa. Ókeypis og frábær leið til þess að iðka móðurtungumálið okkar og bæta við íslenskan orðaforða barnanna.
Hlökkum til að sjá ykkur öll og verið hjartanlega velkomin!