fbpx

Hausthátíð í Stavanger

Event details

  • Sunnudagur | 24. ágúst 2025
  • 13:00
Sunnudaginn 24. ágúst ætlum við að hittast eftir sumarfrí og eiga skemmtilega fjölskyldustund saman.
Hittingurinn er að vanda í góðu samstarfi milli Íslendingafélagsins og Íslensku kirkjunnar í Noregi.
Sr. Lilja Kristín Þorsteinsdóttir nýji prestur Íslensku kirkjunnar í Noregi verður með okkur og er spennt að kynnast frábæru Íslendingunum í Stavanger.
Boðið verður upp á skemmtilega leiki, pylsupartý og notalega útiveru.
Helga Rut formaður verður vel merkt íslenska fánanum og tekur á móti ykkur kl 13:00 á bílastæðinu við Gramstad turisthytta og gengur með ykkur 1,6 km upp að Fjogstadveien.
Ef þið komið seinna þá hafið þið samband við okkur og við leiðbeinum ykkur að svæðinu.
Gönguferðin er afar létt og hentar vel öllum aldri.
Við erum búin að panta nokkra Gapahuka fyrir daginn og erum með frábæra aðstöðu fyrir samveruna.
Hlökkum til að sjá ykkur