Dömurnar í Tríó Frigg

Dömurnar í Tríó Frigg sendu okkur þessa fallegu mynd af sér eftir æfingu í dag Þær eru að æfa á fullu fyrir tónleikana þann 5.maí í sænsku kirkjunni. Aðgangur er ókeypis og við hvetjum ykkur öll til þess að taka kvöldið frá og vera með okkur á tónleikunum.Ítarlegri upplýsingar finnið...

Continue reading

Krílakaffi í Ólafíustofu

Krílakaffi í Ólafiustofu á fimmtudaginn Húsið opnar kl 11:00. Spáin er dásamleg, kjörið tækifæri að byrja hjá okkur og fara svo í huggulega göngu saman með vagnana Verið velkomin

Continue reading

Stjórn og varastjórn 2023-2024

Stjórn og varastjórn Íslensku kirkjunnar í Noregi ásamt sr Ingu Harðardóttir sóknarprest eftir aðalfund kirkjunnar í gær Frá vinstri: Hjörleifur Valsson, Elín Soffía Pilkington, Þuríður Drífa Sigurðardóttir, Inga Harðardóttir, Guðjón Andri Rabbevåg Reynisson, Kolbrún Rut Ragnarsdóttir, Björn Hallbeck, Katla Sveinbjörnsdóttir og Sigrún Helga Hartmann

Continue reading

Gróa og Einar

Það var heldur betur glaðlegt yfirbragð yfir Einari Trausta húsverði Ólafíustofu og Gróu organista þegar við fengum að smella af þeim mynd fyrir aðalfundinn í gær Gróa og Einar hafa litað mannlíf og menningu kirkjunnar fallegum litum og tekið þátt í starfinu til fjölda ára

Continue reading

Sigrún Helga – nýr varamaður í stjórn

Sigrún Helga Hartmann var kosin inn í varastjórn Íslensku kirkjunnar í Noregi á aðalfundinum í dag. Sigrún er með B.Sc. í viðskiptafræði, M.sc. í Alþjóðaviðskiptum auk þess að hafa lokið námi í verkefnastjórnun. Hún starfar sem ráðgjafi hjá Skatteetaten. Sigrún er Ísfirðingur sem er búsett í Nannestad með fjölskyldunni Það...

Continue reading