Sunnudagur til sælu í starfi Íslensku kirkjunnar

Fjölskyldumessa í Bakke kirkju í Þrándheimi þar sem Kór Kjartans söng, Benjamín Gísli lék á píanó, Hjörleifur Valsson lék á fiðlu og sr Inga Harðardóttir þjónaði fyrir altari. Á sama tíma í Osló voru 11 litlir söngfuglar að æfa lögin Lóan er komin, Ó blessuð vertu sumarsól og Vikivaki. Söngfuglarnir...

Continue reading

Litla Laffí – kóræfing í Ólafíustofu

Við minnum á söngæfingu hjá barnakórnum Litla Laffí kl 13:00 í Ólafíustofu í dag. Öll börn hjartanlega velkomin. Það verður kaffi á staðnum fyrir foreldra/forráðamenn. Ef barnið þitt vill koma og prófa að syngja í kór í fyrsta skipti þá er það velkomið. Engin skuldbinding

Continue reading

Fjölskyldumessa í Þrándheimi

Þrándheimur og nágrenni. Verið hjartanlega velkomin í ljúfa fjölskyldumessu í Bakke kirkju sunnudaginn 5. mars kl 14. Fjölskyldustund með söng og gleði, bæn og ró. Kór Kjartans verður á staðnum og syngur fyrir okkur, Benjamín Gísli leikur á píanó, Hjörleifur Valsson leikur á fiðlu og sr Inga Harðardóttir þjónar fyrir...

Continue reading

Opin æfing hjá Ískórnum í Ólafíustofu

Ískórinn býður öll sem hafa ánægju og yndi af því að syngja hjartanlega velkomin á opna æfingu 1.mars kl. 19.00! Söngur er góður fyrir sálartetrið og enn betra þegar sungið er í hóp. Það verður vel tekið á móti öllum. Ískórinn æfir alla miðvikudaga í Ólafíustofu, húsnæði Íslensku kirkjunnar að...

Continue reading

Ungmennahittingur í Ólafíustofu – Osló

Ungmennin í Osló hittast og spila Monopoly í Ólafíustofu föstudaginn 24.febrúar kl17:30-20:00 – Hver gleymir að fá 2000 kall þegar farið er yfir byrjunarreitinn og hver ætlar að kaupa Bankastræti? Taco í matinn  Öll ungmenni 13 ára og eldri eru hjartanlega velkomin í spil, leiki, mat og spjall. Tilvalið tækifæri...

Continue reading