Event details
- Þriðjudagur | 14. september 2021
- 19:00
Það er mikilvægt fyrir alla þá sem starfa með börnum og unglingum að vera meðvitaðir um skyldur sínar og ábyrgð, geta lesið í vísbendingar um að vanræksla eða ofbeldi, hvort sem það er andlegt, líkamlegt eða kynferðislegt, eigi sér stað og vita hvernig bregðast á við ef slík mál skjóta upp kollinum.
Æskulýðsvettvangurinn (ÆV) hefur frá árinu 2010 staðið fyrir námskeiðinu Verndum þau. Námskeiðið er byggt á efni bókarinnar Verndum þau og fjallar um hvernig bregðast á við grun um ofbeldi og vanrækslu gegn börnum og unglingum. Námskeiðið er ætlað öllum þeim sem starfa með börnum og ungmennum.
Á námskeiðinu er m.a farið yfir:
- Tilkynningaskyldu starfsmanna sem vinna með börnum og unglingum.
- Líkamlegt, andlegt og kynferðislegt ofbeldi og vanrækslu hvers konar.
- Hvernig taka skuli á móti ofbeldisfrásögn.
- Reglur í samskiptum við börn og ungmenni.
- Ýmis atriði sem gott er fyrir vinnuveitendur að hafa í huga.
- Úrræði sem í boði eru í samfélaginu fyrir börn og unglinga sem eru þolendur ofbeldis.
Slóðin á fundinn er að finna hér