
Event details
- Föstudagur | 29. júlí 2022 to Sunnudagur | 31. júlí 2022
- 17:00
Takið frá ,,verslunarmannahelgina“ 29. – 31.júlí 2022.
Þá fer fram eins og við getum kallað það núna, árlegt útilegufjör!
Fjörið hefur síðustu ár heppnast frábærlega og margir sem hafa skemmt sér stórkostlega, einnig hefur heyrst að fólk sé að skipuleggja sumarfrí og íslandsferðir með þessa helgi í huga þar sem það ætlar ekki að missa af þessu fjöri.
Dagskrá helgarinnar verður birt síðar en gera má ráð fyrir að hún verði með svipuðu sniðu og síðustu ár fyrir þá sem til þekkja. Leikir og fjör fyrir stóra og smáa, göngur, brekkusöngur, varðeldur, kvöldvaka og sér kvöldvaka og hópefli fyrir unglingana.
Rokosjøen Camping er rekið af Íslendingum, þeim Sævari og Valdísi og er staðsett mitt á milli
Hamar og Elverum, í ca. eins og hálfs tíma akstursfjarlægð frá Ósló.
Þau hjónin hafa verið að taka í gegn og eru salerni og hreinlætisaðstaða til fyrirmyndar.
Aðeins er greitt fyrir tjaldstæðið.
Hamar og Elverum, í ca. eins og hálfs tíma akstursfjarlægð frá Ósló.
Þau hjónin hafa verið að taka í gegn og eru salerni og hreinlætisaðstaða til fyrirmyndar.
Aðeins er greitt fyrir tjaldstæðið.
Ekki verður boðið upp á sameiginlegar máltíðir en á staðnum er kaffihús þar sem hægt er að kaupa létta rétti, kaffi og kruðerí. Í fyrra var einnig boðið upp á pizzahlaðborð sem vakti mikla lukku svo það verður án ef vinsælt í ár líka.
Börn eru á ábyrgð sinna forráðamanna.
Bátaleigan er á eigin ábyrgð.
Bátaleigan er á eigin ábyrgð.
Ölvun og neysla annarra
vímuefna er óheimil.
vímuefna er óheimil.
Skráning á palina@kirkjan.no
Hlökkum til að sjá ykkur sem flest!