Event details
- Laugardagur | 22. október 2022
- 15:00
- Hammersborgtorg 8B, Osló
Handverksmarkaður í sænsku kirkjunni í Osló þann 22. október.
Við ætlum að eiga góðan dag saman á Ólafíuhátíðinni og hefja hátíðardaginn á handverskmarkaði sem verður opin allan daginn og alveg fram á kvöld.
Tónleikar um kvöldið með Laffí og fjáröflunarkaffi.
Ertu að prjóna, mála, smíða, föndra eða vinna annað handverk og vilt selja á handverksmarkaðinum. Endilega sendu tölvupóst til Pálínu á palina@kirkjan.no.
Það kostar ekkert að vera með borð. Við útvegum aðstöðuna en hver og einn sér um sína sölu.
Hlökkum til að heyra frá ykkur.