fbpx

Gæðastundir í Ólafíustofu í Ósló

Event details

  • Fimmtudagur | 9. september 2021
  • 12:00
  • Pilestredet Park 20, 0176 Oslo
Kæru vinir.

Við ætlum að koma saman og eiga notalega stund í uppbyggilegu samfélagi. Hittingarnir eru afslappaðir og mjög fjölbreyttir.

Dásamlegt tækifæri til að eiga notalegt spjall á okkar íslenska ylhýra og njóta samveru í góðum hópi.

 

Við hefjum yfirleitt stundina með stuttri hugleiðingu og eftir það borðum við saman léttan hádegisverð. Vegna matarins er fólk beðið um að tilkynna þátttöku með því að svara SMS-skeyti sem er sent út eða hafa samband við Ólafíustofu í síma 22 36 01 40 (alla daga klukkan 10-14).

Verið hjartanlega velkomin.

Þið getið látið skrá ykkur í SMS-hóp og/eða tölvupósthóp Gæðastunda með því að hringja í Ólafíustofu eða senda tölvupóstpóst á berglind@kirkjan.no með nafni og símanúmeri og þá fáið þið sendar upplýsingar og áminningu fyrir hvern viðburð sem fram undan er.

Sjáumst sem flest – hress og kát.