Event details
- Fimmtudagur | 9. febrúar 2023
- 12:00
- Pilestredet Park 20
Við bjóðum ykkur hjartanlega velkomin til að eiga með okkur ljúfa og notalega Gæðastund einn fimmtudag í mánuði frá kl. 12.
Dásamlegt tækifæri til að eiga notalegt spjall á okkar íslenska ylhýra og njóta samveru í góðum hópi.
Við hefjum yfirleitt stundina með stuttri hugleiðingu og eftir það borðum við saman léttan hádegisverð.
Stundum fáum við til okkar góða gesti og stundum brestum við í söng. Hópurinn hefur einnig farið í góðar gönguferðir, lengri dagsferðir eða í leikhús.
Verið öll hjartanlega velkomin, hver sem þið eruð, hvaðan sem þið komið, á hvaða aldri sem þið eruð og hvert þið stefnið 🙂
Dagsetningar fram á vor eru eftirfarandi:
9. febrúar
9. mars
13. apríl
11. maí
8. júní
Þið getið látið skrá ykkur í SMS-hóp Gæðastunda með því að hringja í Ólafíustofu eða senda tölvupóstpóst á berglind@kirkjan.no með nafni og símanúmeri og þá fáið þið sendar upplýsingar og áminningu í SMS fyrir hvern viðburð sem fram undan er.