fbpx

AÐVENTUHÁTÍÐ 2023 – Ris kirkja í Osló

Event details

  • Sunnudagur | 26. nóvember 2023
  • 16:00
  • Ris kirkja, Risbakken 3, 0374 Oslo

AÐVENTUHÁTÍÐ 2023

 

Íslenska kirkjan í Noregi býður ykkur hjartanlega velkomin í hlýja hátíðarstemmningu í Ris kirkju í Osló þann 26. nóvember kl 16:00.

Aðventuhátíðin er einn af hápunktum ársins í starfi Íslensku kirkjunnar í Noregi og þar er íslenskum jólahefðum haldið hátt á lofti.

Dagskráin er fjölbreytt að vanda, ljúf og hátíðleg jólatónlist, skapandi listasmiðja í jólaanda fyrir börnin, góðar hugleiðingar og jólastemning.

Við kynnum með stolti góðan gest frá Íslandi en í ár mun söng og tónlistarkonan Lovísa Elísabet,Sigrúnardóttir, betur þekkt sem Lay Low, flytja fyrir okkur nokkur lög og syngja okkur inn í aðventuna.

Að lokinni dagskrá mun Íslendingafélagið í Osló sjá um hátíðarkaffi í safnaðarheimili Ris kirkju og þar er nú ekki verið að sletta rjómanum í þakið. Rjúkandi kaffi og notalegt spjall við náungann.

Hlý og kærleiksrík aðventustemning fyrir alla.

Við hlökkum til að sjá ykkur öll!

Fram koma:

sr. Inga Harðardóttir
Lay Low // Lovísa Elísabet Sigrúnardóttir.
Barnakórinn Litla Laffí undir stjórn Rebekku Ingibjartsdóttur.
Ískórinn undir stjórn Ketil Grøtting.