
Event details
- Laugardagur | 22. mars 2025
- 14:00
Guðsþjónusta verður þann 22. mars næstkomandi í Bøler kirkju í Osló og hefst hún kl. 14.
Sr Inga Harðardóttir leiðir stundina, Ískórinn syngur undir stjórn Ketil Grøtting sem einnig leikur á orgel.
Sunnudagaskólinn verður á sínum stað þar sem leiðtogarnir okkar taka vel á móti krökkunum í frábærri aðstöðu í Bøler kirkju.
Kirkjukaffið verður glæsilegt að vanda og allir koma með eitthvað gott á sameiginlegt hlaðborð.
Aðalfundur Íslensku kirkjunnar í Norgei verður á eftir guðsþjónustu í stóra sal Bøler kirkju og hefst eftir kl. 15.
Samhliða aðalfundi verður aðalfundur Ólafíusjóðs haldinn.
Laus sæti eru tvö sæti í aðalstjórn kirkjunnar og er óskað eftir framboðum í þau sæti.
Verið öll hjartanlega velkomin!