Nýr formaður tók við stjórn sóknarnefndar Íslensku kirkjunnar í Noregi 22.mars síðastliðinn.
Drifkraftur, brosmildi og hlýlegt fas hennar leynir sér ekki fyrir þá sem hana þekkja.
En hver er Jenný Rut Sigurgeirsdóttir ?
Jenný er lífefnafræðingur að mennt, með Master of Science í markaðsfræði, auk þess að vera löggiltur leiðsögumaður.
Í dag starfar hún hjá litlu fyrirtækjaráðgjafafyrirtæki þar sem hún fær að nýta bæði fræðilega og hagnýta þekkingu í fjölbreyttum verkefnum.
Hún er gift Steina, sem er norskur tekstahöfundur á auglýsingastofu, og saman eiga þau tvo syni, Ísak – sem er atvinnumaður í handbolta – og Viljar, sem stundar tónlistarnám.
Jenný ólst upp bæði á Íslandi og Noregi en flutti aftur til Noregs fyrir 27 árum og hef síðan þá lifað milli tveggja landa – eða eins og hún sjálf segir “Ég sakna alltaf annars staðarins, hvort sem ég er hér eða þar. En ég er mest Íslendingur. Á íbúð á Íslandi og hef verið mikið þar í öllum fríum. “
“Áhugamálin mín snúa að útivist, ferðalögum, tónlist, matargerð og ekki síður að njóta góðra máltíða með fjölskyldu og vinum. Ég er þakklát fyrir að fá að taka þátt í starfi íslensku kirkjunnar og hlakka til að halda áfram að styðja við og byggja á því góða starfi sem þar hefur verið unnið.”
Við óskum Jenný til hamingju og hlökkum til að vinna með henni og sóknarnefndinni allri.