Um helgina fórum við til Kristiansand og Sandefjord til að fagna með samlöndum okkar þar jólahátíðunum.
Það var góð stemmning, kökuborðin hlaðin kræsingum, hátíðlegar guðþjónustur og jólaböllin lífleg og skemmtileg. Tónlistarfólkið Björg og Þorkell komu með okkur frá Osló og sáu til þess að setja punktinn yfir i-ið með hátíðlegum tónum á báðum áfangastöðunum.
Við þökkum Íslendingafélaginu í Kristiansand og Íslendingafélaginu Ísafold kærlega fyrir góða samvinnu.
Næstu helgi verðum við í Bergen og Stavanger með jólahátíðir.
Hlökkum til að sjá ykkur.