Íslenska kirkjan í Noregi í Noregi boðar til aðalfundar sunnudaginn 17. mars, kl. 15.10 í safnaðarheimili Bøler kirkju í Osló.
Fundurinn hefst eftir guðsþjónustu og kirkjukaffi sem einnig verður í salnum.
Samhliða aðalfundi verður aðalfundur Ólafíusjóðs haldinn
Fundurinn verður sendur út á Zoom eins og áður hefur verið.
Kjörnefnd óskar eftir framboðum í aðalstjórn en tvö sæti eru laus í stjórn.
Áhugasömum er bent á að hafa samband við kjörnefnd ( kjornefnd@kirkjan.no ) eða sóknarprest Ingu Harðardóttir.
Aðalfundur fer með ákvörðunarvald safnaðarins í málum þeim sem undir fundinn heyra samkvæmt lögum eða lögmætum ákvörðunum.
Aðalfundur er vettvangur starfsskila og reiknisskila af hendi stjórnar safnaðarins og einstakra nefnda á vegum safnaðarins. Þar skulu rædd málefni safnaðarins, þar á meðal þau mál sem lögmælt er að undir fundinn séu borin.
Tillögur til aðalfundar skulu berast safnaðarstjórn fyrir 1. mars ár hvert.
Safnaðarmenn njóta kosningarréttar og kjörgengis á safnaðarfundum þegar þeir eru fullra sextán ára.