Skemmtilegur valkostur
Við viljum vekja athygli á því að fyrir þá sem ekki eru mikið fyrir það að „sofa úti“ hlutanum af útilegu að það er að sjálfsögðu í boði sá valkostur að kíkja til okkar í dagsferð á t.d. laugardeginum og taka þátt og fylgjast með dagskránni.
Hér geta ungir og aldnir leikið sér og sprellað og kannski ekki síst á gott spjall við landa sína, gamla sem nýja. Rokosjøen camping er ekki nema ca. 1 tími og 20 mín frá Osló og því tilvalið að skella sér í smá bíltúr.
Í því samhengi viljum við líka benda á kaffihúsið sem er rekið á staðnum af þeim hjónum Valdísi og Sævari.
Á föstudeginum bjóða þau upp á Taco hlaðborð á milli kl. 18-19.
Verð fyrir 12 ára og eldri 249,- kr.
12 ára og yngri 169,- kr
Frítt fyrir yngri en 4 ára
Fyrir sama verð verður á boðstólum á laugardagskvöldið kjúklingasúpu með sýrðum rjóma, rifnum osti og tortilla flögum.
Einnig er hægt að fá smurð og ósmurð nýbökuð rúnstykki bæði laugardag og sunnudag sem er hægt að sækja í afgreiðsluna frá kl. 8.30. og frá kl. 12. fyrir hádegismat.
Verð fyrir rúnstykki er:
ósmurt 17,- kr. stk.
smurt 54,- kr stk.
Mat og rúnstykki má panta í afgreiðslunni bæði svo hægt sé að gera ráð fyrir öllum sem vilja og til að koma í veg fyrir matasóun.
Einnig hægt að kaupa hjónabandssælu og fleira í slenskt bakkelsi í kaffihúsinu og panta pizzu. Þar selja þau líka gos, ís, snakk og sælgæti.