fbpx

Sandefjord og nágrenni – velkomin í páskabrall

Verið hjartanlega velkomin að vera með í íslensku páskabralli á morgun þar sem leikur, skapandi verkefni og kaffi verða í boði.

Við ætlum að leika okkur með þema páskanna, þegar lífið sigrar dauðann!

Svo er bæði gaman og gott fyrir sálina að stússa og bralla og búa eitthvað til!

Páskabrall er ekki venjulegur sunnudagaskóli eða hefðbundin messa heldur opið hús fyrir fólk á öllum aldri. 🐣🐥🐣

Það verða fullt af skapandi og skemmtilegum verkefnum og stöðvum. Viltu blása úr eggi? Eða skreyta páskagreinar? Negla, mála, líma, föndra eitthvað fínt? Eða bara spjalla við alla hina yndislegu Íslendingana sem mæta?

Sannkallað fjölskyldufjör!!

Þátttaka er ykkur að kostnaðarlausu.

Öll hjartanlega velkomin!