
You need to add a widget, row, or prebuilt layout before you’ll see anything here. 🙂
Dásamleg jólastemming í sænsku Margaretakirkjunni í dag í hátíðlegri jólastund.
Ljúfur söngur og tónlist, frá að þessu sinni sameinuðum kór Laffí og Ískórsins, Kolbeins Jóns Ketilssonar við undirleik Gróu Hreinsdóttur, og hlý orð frá sr Ingu í kirkjunni.
Á jólaballinu á eftir tóku allir vel undir í söng og dönsuðu af sér skóna með Kertasníki sem tók nokkra hringi í kringum jólatréð.
Hjartans þakkir öll fyrir komuna og gleðina.