fbpx

Messa og upplýsingarfundur í Bøler kirkju

Hátíðleg og ljúf messa fer fram í Bøler kirkju í Osló sunnudaginn 13. mars kl. 14.00.

Það er sérstakt ánægjuefni að sr. Helga Soffía Konráðsdóttir, prófastur, verður í heimsókn hjá okkur og flytur predikun dagsins, en sr Inga Harðardóttir leiðir stundina. Rebekka Ingibjartsdóttir sér um sunnudagaskólann.
Ískórinn syngur og býður upp á kræsingar í messukaffinu sem er ómissandi hluti af því að koma í kirkju og eiga nærandi og gott samfélag.
Eftir kirkjukaffið verður boðið upp á upplýsingafund um mál fyrrverandi gjaldkera og stöðu Íslensku kirkjunnar í Noregi.
Nánari upplýsingar er að finna inn á heimasíðu kirkjunnar er hér: Tilkynning

Verið öll hjartanlega velkomin!