

Gefðu að móðurmálið mitt,
minn Jesú, þess ég beiði,
frá allri villu klárt og kvitt,
krossins orð þitt út breiði
um landi hér,
til heiðurs þér,
helst mun það blessun valda,
meðan þín náð
lætur vort láð
lýði og byggðum halda.
-Hallgrímur Pétursson (Ps. 35 )