Sálmur 712
- Dag í senn, eitt andartak í einu,
- eilíf náð þín, faðir, gefur mér.
- Mun ég þurfa þá að kvíða neinu,
- þegar Guð minn fyrir öllu sér?
- Hann sem miðlar mér af gæsku sinni
- minna daga skammti´ af sæld og þraut,
- sér til þess, að færa leið ég finni
- fyrir skrefið hvert á lífs míns braut.
- Hann, sem er mér allar stundir nærri,
- á við hverjum vanda svar og ráð,
- máttur hans er allri hugsun hærri,
- heilög elska, viska, föðurnáð.
- Morgundagsins þörf ég þekki eigi,
- það er nóg, að Drottinn segir mér:
- Náðin mín skal nægja hverjum degi,
- nú í dag ég styð og hjálpa þér.
- Guð, ég fæ af fyrirheitum þínum
- frið og styrk, sem ekkert buga má.
- Auk mér trú og haltu huga mínum
- helgum lífsins vegi þínum á,
- svo að ég af hjartaþeli hreinu,
- hvað sem mætir, geti átt með þér
- daginn hvern, eitt andartak í einu,
- uns til þín í ljóssins heim ég fer.
Sandell-Berg – Sigurbjörn Einarsson