fbpx

 Fundarboð: Aðalfundur Íslenska safnaðarins í Noregi, sunnudaginn 9. maí 2021 klukkan 14:00

Íslenski söfnuðurinn í Noregi boðar til aðalfundar sunnudaginn 9. maí 2021 kl. 14:00 á Zoom en fundinn er hægt að opna hér
https://us02web.zoom.us/j/86990015180

Og má skrá sig á fundinn hér að neðan:

Skráning hér!

 

Kjörnefnd óskar eftir framboðum í aðalstjórn.

Áhugasamir hafi samband við formann kjörnefndar Rannveigu Maríu Gísladóttir, í síma 905 51 583 eða á ransy@ransy.net

Ársskýrslu safnaðarins fyrir árið 2020 er að finna hér undir

 

Dagskrá fundar:

  1. Formaður kannar hvort til fundar sé löglega boðað.
  2. Kosning fundarstjóra og fundarritara.
  3. Skýrsla stjórnar.
  4. Stefna safnaðar.
  5. Skýrsla sóknarprests.
  6. Skýrsla menningarfulltrúa.
  7. Skýrsla æskulýðsfulltrúa.
  8. Skýrsla Ólafíusjóðs
  9. Fjárhagsáætlun og ársreikningar lagðir fram til samþykktar.
  10. Kosning í stjórn safnaðarins.
  11. Tillögur.
  12. Önnur mál.

Tillögur:

Stjórn leggur fram tillögu að lagabreytingum á Lögum safnaðarstjórnar Íslenska safnaðarins í Noregi. Aðalfundur 9.maí 2021 hér að neðan.

 

Undir lið 10 þarf að kjósa:

Stjórn Íslenska safnaðarins

Sæti í aðalstjórn, Jónína Margrét Arnórsdóttir óskar ekki eftir endurkjöri. Björn Hallbeck hefur setið í 4 ár og óskar eftir endurkjöri.

 

Áhugasamir hafi samband við kjörnefnd safnaðarins: Rannveigu Maríu Gísladóttir, formann nefndarinnar, í síma 905 51 583.

 

Um aðalfund stendur í reglum safnaðarins eftirfarandi:

2.gr. Aðalsafnaðarfundur

Aðalsafnaðarfundur fer með ákvörðunarvald safnaðarins í málum þeim sem undir fundinn heyra samkvæmt lögum eða lögmætum ákvörðunum.

Aðalsafnaðarfundur er vettvangur starfsskila og reiknisskila af hendi stjórnar safnaðarins og einstakra nefnda á vegum safnaðarins. Þar skulu rædd málefni safnaðarins, þar á meðal þau mál sem lögmælt er að undir fundinn séu borin.

Aðalsafnaðarfund skal að jafnaði halda fyrir maí lok. Til hans skal boðað með fjögurra vikna fyrivara. Aðra safnaðarfundi skal halda ef meirihluti stjórnar safnaðarins óskar þess, eða 150 safnaðarmanna sem atkvæðisrétt hafa á safnaðarfundum.

 

Tillögur til aðalfundar skulu berast safnaðarstjórn fyrir 1. mars ár hvert.

Safnaðarmenn njóta kosningarréttar og kjörgengis á safnaðarfundum þegar þeir eru fullra sextán ára.

 

Arsskyrsla-final-edit