fbpx

Nýtt starfsfólk, ný heimasíða, nýjar lausnir

Íslenski söfnuðurinn í Noregi situr ekki auðum höndum þótt heimsfaraldurinn sníði viðburðum og samkomum þröngan stakk þessa dagana. Íslenska söfnuðinum barst liðsauki nú í haust en þá voru menningarfulltrúi og æskulýðsfulltrúi ráðnir í hlutastöður. Starf safnaðarins hefur vaxið síðasta árið og ljóst að það þyrfti fleiri hendur til að vinna að uppbyggingu safnaðarins. Það er því mikil gleði að fá þær Rebekku Ingibjartsdóttur æskulýðsfulltrúa og Pálínu Ósk Hraundal menningarfulltrúa, í starfsmannahópinn en þær ásamt Ingu Harðardóttur presti, Berglindi Gunnarsdóttir skrifstofustjóra og stjórn safnaðarins vinna að því að byggja upp þjónustu og starf fyrir Íslendinga víðs vegar í Noregi.

 

Auk þess fagnar söfnuðurinn því að loksins lítur nýja heimasíðan ljós. Heimasíðan hefur verið í vinnslu síðasta árið en erfitt var að finna tíma til að einbeita sér fyllilega að verkefninu vegna anna í safnaðaruppbyggingu. Það var svo ekki fyrr en skellt var í lás í heimsfaraldrinum í vor að starfskraftarnir voru nýttir í að uppfæra útlit og efni síðunnar, yfirfara eldri texta og skrifa nýtt efni þar sem þess var þörf. Nokkur tæknileg úrlausnarefni urðu svo til þess að það dróst fram á haust að fullklára síðuna en það gerir það að enn meira gleðiefni að lýsa því formlega yfir að ný heimasíða er komin í loftið! Á kirkjan.no má finna fréttir úr lífi safnaðarins, hagnýtar upplýsingar um athafnir og þjónustu, og yfirlit yfir komandi viðburði. Það ætti því að vera spennandi að fylgjast með viðburðaskráningunum þessa dagana þar sem stöðugt þarf að endurskoða hvaða viðburði er öruggt að bjóða upp á og hverju þarf að fresta til betri tíma. Starfsmannateymið vinnur í sameiningu að því að taka ákvarðanir, leysa úr vandamálum, og finna skapandi leiðir til að takast á við ástandið. Hvaða leikir eru kóvidvænir í unglingastarfi, er hægt að hafa handavinnukvöldið á zoom, og fermingarfræðsluna á netinu? En geta jólamessurnar verið úti? Þessu og mörgu öðru mun tíminn einn geta svarað – og heimasíðan kirkjan.no.

Inga Harðadóttir

Fréttatilkynning  um sama efni sem birtist á www.kirkjan.is þann 9.október 2020.