Aðalvalmynd
Ritning dagsins
Á döfinni
Sigrún Hermannsdóttir vígð til prests í Norsku kirkjunni
Sigrún Hermannsdóttir can.theol. verður vígð til prests n.k sunnudag 5.september kl.18 í Dómkirkjunni í Fredrikstad. Sigrún verður vígð inn í þjónustu hjá Norsku kirkjunni.
Við óskum Sigrúnu Guðs blessunar á akri þjónustunnar við Guð og menn.
Minningarathöfn um prófessor Kjartan Ottósson
Minningarathöfn um Kjartan Ottósson (f.1956) prófessor í málvísindum og norrænum fræðum við Óslóarháskóla verður í Markus kirke,(Schwensens gt. 15, við Sankthanshaugen). miðvikudaginn 25.ágúst nk. kl.17.
Kjartan Ottósson lést á Landspítalanum þann 28. júní sl. og var jarðsunginn á Íslandi.
Blessuð sé minning hans.
Latibær til Noregs
Frábær barna og fjölskylduskemmtun með íþróttaálfinum og Sollu stirðu þann 28.ágúst kl.18 í safnaðarheimili Lambertseterkirkju. (Langbölgen 33, 1101 Oslo). Verð nkr.100 pr.mann.
Sýningin er flutt inn af Guðmundi Gíslasyni sem er þakkað hjartanlega fyrir þetta frábæra framtak í þágu yngstu kynslóðarinnar.
Hugmynd að barnakór
Íslenski söfnuðurinn er að kanna hvort að það sé áhugi fyrir því meðal foreldra að stofna barnakór sem myndi syngja á
Guðsþjónusta í Kongshavn kapell í Tromøy, Arendal
Sunnudaginn 13. júní verður guðsþjónusta í Arendal, Kongshavn kapell í Tromøy. Sr. Helgi Hróbjartsson fyrverandi prestur safnaðarins mun predika og þjóna fyrir altari. Verið hjartanlega velkomin.
Fjölskylduguðsþjónustur í Tromsø og Ålesund
Fjölskylduguðsþjónusta verður á sunnudaginn 6. júní í Elverhøy kirkju i Tromsøy kl.14. Brynja Gunnarsdóttir stjórnarmeðlimur safnaðarins mun lesa ritningarlestra. Kaffi og meðlæti eftir stundina.Verið hjartanlega velkomin.
Messa og aðalfundur safnaðarins í Ósló
Messa í Nordberg kirkju í Ósló sunnudaginn 25.apríl kl.14. Ritningalesarar eru Gunnar Hólm formaður og Inga Erlingsdóttir starfsmaður safnaðarins. Sakkarías Ingólfsson guðfræðinemi predikar. Sunnudagaskólinn á samatíma. Aðalfundur safnaðarins verður svo eftir messuna í safnaðarheimilinu eins og boðað hefur verið til. Verið hjartanlega velkomin.
Páskakveðja frá presti
Kæru vinir.
Messa í Bergen
Messa í Bergen 21.mars kl.14 í Åsane kirkju. Fermingarbörnin taka þátt í messunni. Safnaðarstjórn Íslenska safnaðarins í Noregi taka þátt í messunni og verða til spjalls í messukaffinu. Íslendingafélagið í Bergen hefur umsjón með messukaffinu eins og venja er. Verið hjartanlega velkomin. Arna Grétarsdóttir prestur.
Alþjóðlegur bænadagur kvenna
Alþjóðlegur bænadagur kvenna er á föstudaginn 5.mars. Í tilefni dagsins verður sameiginleg bænaguðsþjónusta með þeim söfnuðum sem hafa aðsetur í Nordbergkirkju. Stundin byrjar kl.18.30. Þessi stund er byggð upp eins um allan hinn kristna heim og hafa konur í Kamerún undirbúið helgihaldið og valið textana þetta árið. Yfirskrift dagsins er " Allt sem andardrátt hefur, lofi Drottinn".
Þjóðkirkjan
- Fjórtándi sunnudagur eftir þrenningarhátíð
- Málstofa um Karl Barth og kvöldmáltíðina
- Hjálparstarf kirkjunnar sendir 2,5 milljónir króna til neyðarhjálpar í Pakistan
- Málstofa um tilkynningaskyldu og trúnaðarskyldu
- Innanndyra í kirkjunni 2010
- Hvatning til samstöðu um úrbætur
- Kirkjan og kynferðisofbeldi: Fimm hádegiserindi í Háskóla Íslands
- Hádegisfundur um trúnaðar- og þagnarskyldu presta





