60 ára og eldri
Fimmtudaginn 8.febrúar, hittast 60ára+ í Ólafíustofu Pilestredet Park 20 í Osló.
Byrjað verður á stuttri kyrrðarstund kl. 12:15 sem sr. Lilja Kristín Þorsteinsdóttir leiðir áður en borðhald hefst kl. 12:30.
Á boðstólnum verður léttur hádegisverður, plokkfiskur og heima bakaða rúgbrauðið hennar Áslaugar.
Ekki missa að því. Endilega kíkið við í Ólafíustofu og njótum þess að eiga gott samfélag i afslappandi umhverfi.
Allir eru hjartanlega velkomnir. Hlökkum til að sjá ykkur.
Áslaug, Oswald og Lilja Kristin
Prenta | Lilja Kristín | 19.apríl 2017 10:36 | Fréttir. |